Samtök Svarfdælinga í Reykjavík og nágrenni efndu til fyrsta flóamarkaðar á Íslandi. Þau lögðu líka lýðveldinu til forsetaefni árið 1968. Það leika ekki önnur átthagafélög eftir. Björk Guðjónsdóttir frá Skáldalæk gekk snemma til liðs við samtökin. Hún var í forystusveit þeirra um árabil og formaður stjórnar um hríð. Lesa meira
Kristján Eldjárn
Göngugarpur frá Dalvík ráðinn umsjónarmaður á Bessastöðum
StaðlaðNýr umsjónarmaður fasteigna forsetaembættisins komst að því á dögunum að steindur gluggi á stafni Bessastaðakirkju, sjálft skjaldarmerki lýðveldisins, hefði ekki verið upplýstur svo áratugum skipti. Hann kippti því snarlega í liðinn og nú sést til ferðafólks undir kirkjuveggnum að festa sér ljósmyndir af glugganum glæsilega.
Umsjónarmaðurinn er Dalvíkingurinn Friðbjörn Beck Möller Baldursson. Lesa meira