Getur hundur ársins verið tík? Áleitinni spurningu varpað fram snemma morguns í gönguklúbbnum og líknarfélaginu Sporinu í anda dólgafemínismans sem gekk að manni ársins dauðum. Svars er beðið. Lesa meira
Mánuður: desember 2017
Í þriðja sinn á skurðarborð á hálfu ári eftir mótorhjólaslys
StaðlaðÞröstur Karlsson þáði boð um að koma í stóðréttir í Svarfaðardal 1992. Honum leist vel á sig og nokkrum árum síðar keypti hann þriðjung lands á jörðinni Jarðbrú og byggði þar glæsilegt hús. Hann á fyrirtæki fyrir sunnan en er óvinnufær. Stærsta verkefnið nú er að ná sér sem mest eftir mótorhjólaslys sem var nálægt því að kosta hann lífið. Lesa meira
Skötuvertíðarlok á Loka
StaðlaðSkötumáltíðin á Loka á Skólavörðustíg var unaðsleg í Þorláksmessuhádeginu og þétt setinn Svarfaðardalur á efri hæðinni. Góðvinir hurfu glaðir á braut en samt með kökk í hálsi af því veitingahaldararnir Hrönn og Þórólfur pakka saman um áramótin. Þau verða ekki yfir skötupottum þar að ári. Lesa meira
Ljúft í Fríkirkjunni og lokasamkoma á Loka
StaðlaðLaugardagurinn varð til lukku. Magnaðir og ljúfir tónleikar Kristjönu Arngríms og liðssveitar hennar í Fríkirkjunni síðdegis og strax á eftir stuð- og fræðasamkoma Svarfdælinga á Loka á Skólavörðuholtinu.
Jólatónleikar Kristjönu eru hefðbundin athöfn í desember og óbrigðult tákn um hvað í vændum er á dagatalinu. Söngur mæðgnanna Kristjönu og Aspar Eldjárn er meira en einnar messu virði og þegar með þeim eru svo Örn Eldjárn með gítarinn, Hjörtur Yngi Jóhannsson á píanó og Jón Rafnsson á kontrabassa, ja þá þarf ekki að biðja um meira.
Guðrún Gunnarsdóttir var áður kynnt sem sérstakur gestur tónleikanna en hún vaknaði með ráma rödd að morgni laugardags og varð að halda sig heima. Þær Kristjana munu í staðinn mæta tvíefldar til leiks á sameiginlegum tónleikum á nýju ári.
Svo barst leikurinn á veitingastaðinn Loka þar sem Þórólfur og Hrönn ráða ríkjum – ennþá. Þau hafa selt húsið og reksturinn og hverfa á braut um áramótin. Það var afar vel viðeigandi að auglýsa opið hús á efri hæðinni á loka strax eftir Fríkirkjutónleikana. Húsið troðfylltist og afkomendur og viðhengi Dalsins áttu ljúfar stundir í framhaldinu.
Maður er manns gaman og Svarfdælingar komast gjarnan langt á því einu saman. Það kryddaði tilveruna alveg sérstaklega að Júlli Jónasar sýndi myndir úr menningarsjóði föður síns, Jónasar á bílaverkstæðinu Hallgrímssonar. Það sem menn skemmtu sér yfir þessum myndum.
Meira að segja farandkonan Stutta-Stína birtist eins ljóslifandi og kostur var á veggnum. Og þegar hún er kominn líka er þétt setinn Svarfaðardalur í alla staði.
Dalvíkurtré Heiðmerkur fært í jólaskrúða
StaðlaðFélagsmenn og velunnarar Sporsins, líknarfélags og gönguklúbbs, puntuðu fósturtré Dalvíkur í rökkri morgunsins í tilefni af aðventubyrjun. Þar með er jólahald þessa hluta Suðursvarfdælinga formlega hafið. Lesa meira