Sannkölluð söngveisla í Bergi á Dalvík þegar Hlini Gíslason frá Hofsá þandi raddböndin og Páll Barna Szabó lék með á píanó núna í marsmánuði 2017.
Svarfdælasýsl var fluga á vegg og tók talsvert upp á tónleikunum, með leyfi Bessa.
Hljóðbrot af þessum yndislegu tónleikum á Vefnum hafa fengið lygilega mikla hlustun og Sýslinu berast sífellt áskoranir um að birta meira.
Sýslið byggir brú milli landshluta, líka í tónum. Sjálfsagt er að verða við áskorunum og biðja flytjendur um leið afsökunar á þeirri framhleypni að láta Sony-upptökugræjuna ganga – og birta síðan eins og ekkert sé sjálfsagðara.
Nauðsyn brýtur hins vegar lög. Þessir tónleikar voru sérlega góðir og áhugaverðir. Mörg þúsund manns sem hlýddu á það sem þegar hefur farið í loftið á Vefnum eiga meira skilið.
Gjörið svo vel að kíkja í hornið niðri til hægri og smella á HD til að fá afurðirnar í bestu myndgæðum.
Góðar stundir og njótið tóna í menningarhúsinu Bergi á Dalvík.
Lengi lifi Hlini jarl og allt hans fylgdarlið!
Hlini jarl af Hofsá I:
Hlini jarl af Hofsá II:
Steinar Steingrímsson og Felix Jósafatsson:
Michael Jón Clark:
Andrea Lucas frá Þýskalandi: