Þess verður minnst á þriðjudaginn kemur, 9. apríl, að rétt 50 ár eru liðin frá því að ellefu sjómenn fórust í fárviðri við Norðurland, þar af sjö Dalvíkingar í blóma lífsins. Þetta gerðist í dymbilvikunni 1963. Dalvíkingarnir voru af vélbátunum Hafþóri og Val.
Sunnandalvíkingurinn Haukur Sigvalda er frumkvöðull og helsti drifkraftur fjölþættrar minningarathafnar á Dalvík og Eyjafirði.
Dagskráin 9. apríl hefur tekið á sig eftirfarandi mynd:
Kl. 13:00
- Trébátar leggja úr höfn á Dalvík og Húsavík áleiðis að mynni Eyjafjarðar norður af Gjögrum yst á Flateyjarskagarskaga. Þar verður blómakransi varpað í hafið í minningu þeirra er fórust í páskahretinu mikla 1963.
- Séra Magnús G. Gunnarsson, sóknarprestur á Dalvík, flytur minningarorð.
- Gert er ráð fyrir því að komið verði til baka til Dalvíkur um kl. 15:30.
- Þeir sem áhuga hafa á því að slást í för eru velkomnir svo lengi sem næg skipsrúm bjóðast.
Kl. 16:00
- Bautasteinn afhjúpaður við athöfn á norðurgarði Dalvíkurhafnar.
- Ávarp: Svanfríður Jónasdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar.
Kl. 17:00
- Minningarathöfn í Dalvíkurkirkju:
Steinninn sem reistur verður sem minnisvarði á Dalvík var sérvalinn þar í hafnargarðinum haustið 2012 og fluttur suður í Kópavog til listrænnar meðhöndlunar og merkingar. Jón Adolf Steinólfsson, tréskurðarmeistari og listamaður, klappaði lágmynd í steininn.