Dalvíkingurinn Sigga Jóns, Sigrún G. Jónsdóttir, fer eins og logi yfir akur þessa dagana og selur páskasúkkulaði til styrktar ABC barnahjálp. Hún vill helst losna við nokkur tonn af þessari vöru og vonandi tekst það því súkkulaðið af firnagott og málefnið enn betra! Lesa meira
Dagur: 11.3.2012
Hafgolufólk Önnu Dóru
StaðlaðHafgolufólk er ný skáldsaga eftir Dalvíkinginn Önnu Dóru Antonsdóttur, sjötta bók höfundar. Eymundsson segir á heimasíðu sinni að sagan sé skrifuð af innsæi og einlægni um stóra viðburði í lífi venjulegs fólks sem ólst upp í skugga styrjaldar og birtir klausu úr sögunni sem sýnishorf af því sem bíður lesandans: Lesa meira
Svarfdælasýsl á Lokakaffi
Staðlað
Hallur Steingrímsson frá Ingvörum, Karl Sævaldsson, Júlli Jónasar og Hrönn, vert og textílhönnuður, á samkomunni á Loka 9. mars.
Svarfdælingar á höfuðborgarsvæðinu og viðhengi þeirra koma gjarnan saman að kveldi fyrsta föstudags í mánuði yfir vetrartímann, sötra öl eða kaffi, og ræða málin. Þetta hófst á krá í Kópavogi veturin 2010-2011, að frumkvæði Hauks Sigvalda og Sindra Más Heimissonar, en í vetur hefur vettvangurinn verið Café Loki – þetta notalega veitingahús efst á Skólavörðuholtinu undir vegg sjálfrar Hallgrímskirkju. Það á auðvitað sérlega vel við að Svarfdælir komi saman einmitt þarna, því Svarfdælingurinn Þórólfur Antonsson rekur staðinn ásamt eiginkonunni, Hrönn Vilhelmsdóttur textílhönnuði. Og undir þessu sama þaki starfar Hrönn að listsköpun sinni og list hennar setur svip á staðinn, sem og auðvitað það sem á borð er borið í nafni matargerðarlistarinnar. Lesa meira